Innskráningar kubbur

Auglýsing

Könnun

Ég get opnađ banana á svalan hátt!

Fyrsti fundur eftir jól!

15. janúar 2009 klukkan 14:00
Það er fundur í dag á venjulegum tíma.
Guđrún Sigfúsdóttir
1 athugasemd

Vígsluútilega helgina 10.-12. október!

03. október 2008 klukkan 08:48
Jæja, nú fer að líða að fyrstu útilegu vetrarins og verður hún í Valhöll helgina 10. - 12. október og kostar 1000 kr. (fyrir mat). Skrí+áning verður á næsta fundi og þá á einnig að greiða fyrir ferðina. Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband.

E.s. Dagsskrá verður dreift á næsta fundi

Kv. Sveitarforingjar
Guđrún Sigfúsdóttir
3 athugasemdir

Klćđnađur!

24. september 2008 klukkan 19:40
Viljum bara minna ykkur á að klæða ykkur þannig að þið getið verið úti á morgun. Þetta gildir annars um alla fundi, alltaf að hafa föt til að vera bæði úti og inni.

Kv. Sveitarforingjarnir
Guđrún Sigfúsdóttir
Engin athugasemd

Vetrarstarfiđ hefst ađ nýju!

22. ágúst 2008 klukkan 21:04
Takk fyrir frábært landsmót, þið voruð æðislegar!

Þá fer fjörið að byrja að nýju. Fimmtudaginn 28. ágúst verður sameiginlegur fundur fyrir alla (kynningarfundur m.m.) Frá hálf sex til hálf sjö og hvetjum við ykkur til að mæta!

Fimmtudaginn 4. september byrja síðan venjulegir skeifufundir og verða þeir frá 17:30 til 19:00.

Kv. Sveitarforingjar Koss
Guđrún Sigfúsdóttir
5 athugasemdir

Ţá er komiđ ađ ţví!

10. júní 2008 klukkan 18:49
Þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir með öndina í hálsinum...
Á fimmtudaginn kl. 18:30 til 20:00 að Hörum hefst sumarstarfið hjá okkur!
Allar að mæta með góða skapið, sjáumst hressar,

Kv. SveitarforingjarnirHlæjandi
Guđrún Sigfúsdóttir
1 athugasemd

Vetrarstarfi lokiđ!

10. maí 2008 klukkan 15:11

Sælar,

Til hamingju með frábært bingó! Þið voruð ótrúlega duglegar, þið voruð frábærar! Þið söfnuðuð miklu fleiri vinningum en við hefðum getað ýmindað okkur, allar komu með það sem þær voru beðnar um, nema ég, og svo voruð þið frábærar á bingóinu sjálfu. Ég var miklu stressaðari en þið og það er ótrúlegt að þið hafið þolað okkur Heiðrúnu sem vorum gersamlega að fara á taugum!

Við söfnuðum 78.415 kr. og er allt komið inná reikning á mínu nafni sem er sérmerktur skeifunni og ef þið hafið einhverjar spurningar eða athugasemdir hafið þá endilega samband við mig. Nokkrir borguðu með korti og við þurfum að fá þá peninga og þegar það er komið, þá skiptum við peningunum jafnt niður á ykkur, þannig að það væri gott ef þið sendið mér reikningsnúmer á reikningnum sem þið viljið fá peningana á.

Guðrún (25gus@ma.is)
Guđrún Sigfúsdóttir
4 athugasemdir

Stöndum nú saman!

01. maí 2008 klukkan 17:21

Þá fer að styttast í blessað bingóið og það er alveg óteljandi hlutir sem þarf að gera. Við þufum í fyrsta lagi að vera ótrúlega duglegar að safna vinningum... Er búið að fara í öll fyrirtækin niðri á eyri? Mætti ekki fara á alla veitingastaði? Hvað með göngugötuna? Var einhverntíman farið þangað? Þurfum að drífa í þessu, endilega farið á alla staði sem ykkur dettur í hug og skrifið bara í athugasemdirnar hvert þið fóruð. Þetta tekur ekki langan tíma, ef þið skiptið ykkur niður.
Verið svo duglegar að taka með ykkur auglýsingar hvert sem þið farið.
Það koma fleiri upplýsingar eftir því sem á líður, þannig að þið skuluð fylgjast vel með,

Kv. SveitarforingjarSvalur

Guđrún Sigfúsdóttir
12 athugasemdir

Ýmislegt

25. apríl 2008 klukkan 21:12
Gleðilegt sumar!
Jæja, dreifa auglýsingum, safna vinningum og það er enginn fundur 1. maí.
8. maí verður Bingóið klukkan 19:30, þ.a. fundurinn verður lengri en venjulega. Mæting verður fyrir alla á Hamra klukkan 18:00, það er hálftíma fyrr en venjulega.
Eins og alltaf er velkomið að spurja okkur ef eitthvað er.

Kv. Sveitarforingjar
Guđrún Sigfúsdóttir
2 athugasemdir

Fundur á Sumardaginn fyrsta!

22. apríl 2008 klukkan 18:07
Sælar,
Við munum halda léttan skátafund á venjulegum tíma núna á sumardaginn fyrsta. Ætlum að færa bingóið og hafa það á fundartíma 1. maí og ætlum að skipuleggja allt í sambandi við það núna á sumardeginum fyrsta. Allir að koma með vinningana sem þeir eru búnir að safna!
Kv. Sveitarforingjar
E.s. Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband.
Guđrún Sigfúsdóttir
2 athugasemdir

Landsmót nálgast!

15. apríl 2008 klukkan 17:29
Skráningarfrestur á landsmót rennur út 24. apríl, svo það er um að gera að skrá sig NÚNA, þ.e. ef þið eruð ekki þegar búnar að því.
Samkvæmt landsmótsvefnum eru innan við 100 dagar þangað til við hittumst, svo við verðum að fara að undirbúa okkur af alvöru, jeij!
Við ætlum að halda bingó sunnudaginn 27. apríl samkvæmt núverandi plani. Ef einhver hefur betri hugmynd, endilega koma með hana. Annars verðum við bara að drífa okkur í að safna fleiri vinningum og búa til auglýsingar, hengja upp auglýsingar og vona svo að einhverjir mæti. Ég set listann yfir svæði hérna fyrir neðan og svo verðum við bara að vera súper duglegar að safna.
Eitt að lokum, eru ekki allir á því að við ættum að taka hlé og bjóða uppá léttar veitingar til sölu? Ættum við að hafa eitthvað með landsmóts eða skátablæ? Kakó og grillaðar pylsur? Kannski eins og við gerðum um helgina? Endilega tjáið ykkur í athugasemdadálknum, til þess er hann.
Heiðrún Eva, Þóranna, Jónanna og Karen:

Glerártorg, Glerárgata, Sunnuhlíð.

Regína, Fríða Kristín, Hólmfríður og Ásta Lilja:

Geimstofan og fyrirtækin niðrá eyri (ekki þó glerárgatan), Hagkaup, Vífilfell, Bjarg, Átak og Sundlaug Akureyrarbæjar.


Aldís, Sólveig og Ingibjörg:

Göngugatan og Kaupangur.


Foringjar:

Flugfélag Íslands, Ferðaskrifstofa Akureyrar, Friðrik V, fyrirtækin úti í þorpi.

Ef þið eruð búnar með það sem þið áttuð að taka og dreymir um fleiri fyrirtæki, megið þið endilega fara á fleiri staði, þið bara skrifið í athugasemdirnar hvað þið gerið í þeim málum.
Hlökkum til að sjá ykkur allar á fimmtudaginn!

Kv. Sveitarforingjar
Guđrún Sigfúsdóttir
1 athugasemd